Staður
Stað byggðu hjónin Kristján Egilsson, fæddur í Miðey, Voðmúlastaðasókn, Rang. og Sigurbjörg Sigurðardóttir, fædd í Kirkjulandshjáleigu, Landeyjum. Þau bjuggu þar allan sinn búskap. Börn þeirra: Bernótus, Símon, Egill, Guðrún og Emma.
Húsið Staður stóð við Helgafellsbraut 10 og þar bjuggu hjónin Pálmi Pétursson og Birna Björgvinsdóttir og börn þeirra Björgvin, Karlotta og Guðrún Sólveig þegar byrjaði að gjósa 23. janúar 1973.
Heimildir
- Íbúaskrá Vestmannaeyja 1. desember 1972.