Guðni Finnbogason (Norðurgarði)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 22. mars 2011 kl. 08:15 eftir Inga (spjall | framlög) Útgáfa frá 22. mars 2011 kl. 08:15 eftir Inga (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Guðni Finnbogason, Norðurgarði, fæddist í Vestmannaeyjum 10. október 1909 og lést 2. júlí 1962. Foreldrar hans voru Finnbogi Björnsson og Margrét Jónsdóttir, seinni konu Finnboga. Eiginkona Guðna var Ágústa Sigurjónsdóttir og eignuðust þau þrjú börn, Ólaf, Helga og Ásu. Þau bjuggu á föðurgarði Guðna, Norðurgarði.

Formennsku hóf Guðni árið 1931 með Hansínu, síðar var hann vélamaður á Veigu en varð að hætta sökum heilsubrests. Síðustu ár sín vann hann við smíðar hjá Ísfélaginu. Hann lést 52 ára gamall, eftir mikil veikindi.

Guðni var góður maður og umhyggjusamur og góður heimilisfaðir. Hann aðstoðaði foreldra sína í elli þeirra og létust þau bæði á Norðurgarði.


Heimildir

  • Friðfinnur Finnsson. Guðni Finnbogason, minningargrein. Sjómannadagsblað Vestmannaeyja. 1964.
  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.