Tanginn

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 25. júlí 2005 kl. 15:37 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 25. júlí 2005 kl. 15:37 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Húsið Tanginn stóð við Strandveg 46. Það var verslun Gunnars Ólafssonar en var rifin þegar verslun reis við hliðina. Þar er verslunarhúsnæði enn þann dag í dag.

Lóðina fékk myllusmiðurinn Birck, Johan Julius Frederik Birck, fyrir verslunarrekstur og stofnsetti verslunina Juliushaab árið 1845. Verslunina rak hann aðeins í nokkur ár og árið 1851 keypti N.N. Bryde verslunina handa tvítugum syni sínum, J.P.T. Bryde.