Breytileg átt og hægviðri
Þjóðhátíðarlag | ||
1948 | 1949 | 1950 |
- Breytileg átt um svalan sæ
- og síld er varla nokkur,
- en allir vita, að Ási í Bæ
- er Íslands besti kokkur.
- Kveð ég um síldarkempurnar,
- kaldur er norðan svalinn
- meðan ég svíf með Sigga Mar
- sætmjúkur um dalinn.
- Um dalinn allan ólgar líf
- og glymur af gleðilátum,
- þar er dans og vín og víf
- og varðeldar hjá skátum.
- Bregðist ennþá síldin úr sjó
- og svarri brim á rifi,
- glaðir drykkju þreytum þó;
- þjóðhátíðin lifi
- Lag: Oddgeir Kristjánsson
- Texti: Árni úr Eyjum