Mormónapollur

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 22. júlí 2005 kl. 14:10 eftir Smari (spjall | framlög) Útgáfa frá 22. júlí 2005 kl. 14:10 eftir Smari (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Mormónapollur er lítið sjávarlón norðarlega í Ofanleitishamri, vestan við Torfmýri. Nafn þess er dregið af því að um nóttu þann 5. maí 1851 voru fyrstu Íslendingarnir sem tóku upp mormónatrú skírð í pollinum. Það voru hjónin Benedikt Hannesson og Ragnhildur Stefánsdóttir.

30. júní 2000, reistu afkomendur íslenskra vesturfara í Utah minnismerki til minningar um þá Íslendinga sem tóku mormónatrú og fluttu til Utah í Bandaríkjunum á árunum 1854-1914.