Páll Oddgeirsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 21. júlí 2005 kl. 10:00 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 21. júlí 2005 kl. 10:00 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Páll Oddgeirsson var fæddur 5. júní 1888 í Kálfholti í Rangárvallasýslu. Páll var sonur séra Oddgeirs Guðmundsen. Fjölskyldan flutti til Eyja ári eftir fæðingu Páls því þar fékk faðir hans veitingu fyrir Vestmannaeyjaprestakalli. Séra Oddgeir var prestur í Eyjum í 35 ár við miklar vinsældir. Páll var í stórum systkinahóp, átti hann 14 systkini.

Eiginkona Páls hét Matthildur Ísleifsdóttir frá Kirkjubær|Kirkjubæ. Þau eignuðust fimm börn. Matthildur lést í ágúst 1945 en Páll lést 24. júlí 1971.

Menntun

Til Kaupmannahafnar var Páll sendur til að nema við verzlunarskóla.

Störf

Þegar Páll kom heim frá Kaupmannahöfn stofnaði hann verslun og fékk góðan orðstír fyrir góðar og smekklegar vörur. Í uppeldi sínu hafði verið lagt áherslu á velvild í garð sjómanna og fékk hann að kynnast erfiðu hliðum preststarfsins þegar slysin höfðu átt sér stað. Því stofnaði hann útgerð og var með fiskverkun og átti gott samstarf við sjómenn.

Menningarstörf

Páll hafði óþrjótandi áhuga á Vestmannaeyjum og gerði allt sem í hans valdi stóð til að bæta menningu og að rækta Eyjarnar. Ræktaði hann á mörgum stöðm á Heimaey og ber hæst ræktunin suður í Klauf á Breiðabakki, þar sem hann útbjó góðan útivistarstað fyrir Eyjamenn.

Páll stóð fyrir byggingu minnisvarða um drukknaða við Vestmannaeyjar. Kom hann með hugmyndina á Þjóðhátíð árið 1935 og afhjúpaði hann hið mikla verk árið 1951.



Heimildir

  • Friðfinnur Finnsson. Páll Oddgeirsson, minningargrein. Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1972.