Ömpustekkir
Ömpustekkir er hraunhólar í norðaustur frá Lyngfelli, sunnan við flugbrautina. Ekki vita menn lengur hvaðan nafnið kemur, en sagt er að Vilborgarstaðarbændur hafi haft þar stekki, sem fær var frá í Vestmannaeyjum, en var þar aðeins um skamma hríð. Sumir segja, að Ampa kerling, sem búið hafi í Ömpuhjalla, hafi haft þar í stekkjum og séu hraunhólarnir leifar þeirra.
Á árum áður er sagt að reimt hafi verið sunnan við Ömpustekki, en þegar komið var norðan við þá hætti allur reimleiki. (Sjá Verndarvættirnir í Ömpustekkjum)
Heimildir
- Ömpustekkir, bls. 33. Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1977.