Dalbúinn
- Heyrði ég hvíslað
- hamraveggnum frá,
- hér á ég heima
- hulduslóðum á.
- Fegurðin fyllir
- fjallasalinn minn.
- Hann er minn heimur
- Herjólfsdalurinn.
- Svaraðu, svaraðu
- segðu ekki nei.
- Þú hefur heillað
- unga huldumey.
- Bergstallar byrgja
- breiðar hamradyr,
- viltu minn vinur
- verða hérna kyr.
- Svaraðu, svaraðu
- segðu ekki nei.
- Þú hefur heillað
- unga huldumey.
- Svaraðu, svaraðu, o.s.fr.
- Lag: Ólafur M Aðalsteinsson
- Texti: Guðjón Weihe