Í Herjólfsdal (1985)
- Í Herjólfsdal vil ég vera
- vaka þar kvöldin löng.
- Ævintýrin bjarmarnir bera
- brekkurnar óma af söng.
- Mig heilla dalsins hlýju ágústnætur
- við húmsins skýru ævintýrarsýn.
- Logar bálið lýsir klettarætur
- leiðist æskan fram með tjarnarbrún.
- Hér vil ég lifa, leika í skjóli fjalla
- og líta yfir ævifarinn veg.
- Ef að ég mætti öll þau afturkalla
- árin sem að liðu á hulduveg.
- Í Herjólfsdal vil ég vera
- vaka þar kvöldin löng.
- Ævintýrin bjarmar bera
- brekkurnar óma af söng.
- Hvað er fegra en dalsins frjálsu stundir
- fannhvít tjöld og bál í klettasal
- Fagra söngva fjöllin taka undir
- friður ríkir inn í Herjólfsdal.
- Í Herjólfsdal vil ég vera,
- vaka þar kvöldin löng.
- Ævintýrin bjarmarnir bera
- brekkurnar óma af söng.
- Lag:Lýður Ægisson
- Texti:Guðjón Weih