Ástin bjarta
- Innst í hjarta, ástin bjarta,
- er að starta mér,
- það er þessi eina, ástin sanna hreina,
- sem aldrei kann að leyna sér.
- Blóðið er á tampi, bruni sem í hampi
- blossandi lampi inn í mér.
- Brosið hennar brosið,
- beggja vara flosið,
- ærir mig á einhvern veg.
- Stilltu þig nú strengur,
- stattu þig nú drengur,
- þarna er hún svo ung og yndisleg.
- Innst í hjarta, ástin bjarta,
- er að starta mér,
- sjáðu þessa lokka, allan þennan þokka,
- það er sjokk ef illa fer,
- steinar allir nikka, stjörnuaugun blikka,
- stelpan kvikk og létt á brún.
- það er þessi eina, þú veist hvað ég meina,
- það má reyna, það má reyna, það má reyna
- segir hún.
- Lag og Texti: Ási í Bæ