Peyjaminning

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 18. júlí 2005 kl. 16:31 eftir Jonas (spjall | framlög) Útgáfa frá 18. júlí 2005 kl. 16:31 eftir Jonas (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Nú leitar minn hugur á heimaslóð,
mér helg er sú minning og kær.
þú, Eyjan mín, reyndist mér ungum svo góð
og enn þú stendur hjarta nær.
þótt örlögin bæru mig burt frá þér
og bindi mig fjarri þér enn,
þá vonin í draumi á vængjum mig ber,
til Vestmannaeyja kem ég senn.
Mér hugur í brjósti af fögnuði hlær,
hér sindrar og blikar hinn síkviki sær.
Í æsku ég átti hér ótalmörg spor,
og enn á ný er komið vor.
Ég man okkur peyja í pysjuleit
og prakkarastrikanna fjöld,
Herjólfsdal skreyttan sem hátíðarreit
sæbarða karla með sigg í mund
sem björgina drógu í land,
og lífsglaðar ungmeyjar, léttar í lund,
sem langaði í strákastand.
Mér hugur í brjósti af fögnuði hlær,
hér sindrar og blikar hinn síkviki sær.
Í æsku ég átti hér ótalmörg spor,
og enn á ný er komið vor.
Þó ættirðu eyjan mín erfið ár
og eldurinn léki þig grátt,
þó enn megi finna þín flakandi sár,
þá fegurð samt og tign þú átt.
úr öskunni rístu nú ung og hrein
með órofið átthagaband.
Á Stórhöfða bárurnar byltast við hlein,
þær brotna enn við unnar sand.
Lag: Gísli Helgason
Texti: Hafsteinn Snæland