Vísan um dægurlagið
- Nú hljómar inn í bóndans bæ,
- í bíl á heiðarvegi,
- í flugvél yfir fold og byggð
- og fleytu á bláum legi.
- Þú hittir djúpan,dreymin tón,
- sem dulinn býr í fólksins sál,
- og okkar hversdags gleði og grát
- þú gefur söngsins væng og mál
- þú gefur söngsins létta væng
- og ljúfa tónamál.
- Lag: Oddgeir Kristjánsson
- Texti: Sigurður Einarsson