Búastaðir
Búastaðir voru tvær jarðir, Eystri-Búastaðir og Vestur-Búastaðir. Upprunalega nafngiftin var Bófastaðir og er dregið af viðurnefninu buvi, sem þýddi digur, klumpalegur maður. Eftir 1600 er bærinn alltaf kallaður Búastaðir.
Búastaðir höfðu í Elliðaey 30 sauða beit og allar nytjar af fugli sem voru í eynni. Fólkið á bænum stundaði fýlatöku úr Stórhöfða.
Örnefni
Í túni Eystri-Búastaða
- Dagteigur
- Sléttur túnblettur nyrst og vestast í túninu, milli túna Háagarðs og Presthúsa. Á Dagteigi var grasmikið og var það álit manna að þar hefði verið akurlendi.
- Lambhóll
- Einnig kallað Lambhúshóll. Hóll syðst í túninu. Þar var áður lambhús.
Í túni Vestri-Búastaða
- Kvíslarhóll
- Stóð fyrir sunnan og vestan bæinn. Þar var áður fyrr þurrkðaar skinnbrækur á þar til gerðum kvíslum.
- Ólafshúsarimi
- Hólrani vestur úr Kvíslarhóli í átt til Ólafshúsa.
- Hvammur
- Lítil laut norður og vestur af Kvíslarhóli.