Skipstjóra- og stýrimannafélagið Verðandi
Tildrög að stofnun félagsins voru þau að skipstjórar og stýrimenn vildu stofna til samstarfs vegna ýmisa nauðsynamála eins og til dæmis að reisa vista á Þrídröngum og vinna að hagsmunum og betri launakjörum skipstjóra og stýrimanna. Þann 27. nóvember árið 1938 var svo haldin stofnfundur og voru stofnendur alls 60 manns. Fundurin var haldinn í K.F.U.M & K. húsinu. Kosið var í stjórn og fyrsta stjórninn var skipuð svona: Árni Þórarinsson formaður, Sighvatur Bjarnason varaformaður, Sigfús Scheving ritari, Ármann Friðriksson vararitari, Karl Guðmundsson gjaldkeri, Jónas Bjarnason varagjaldkeri. Endurskoðendur félagsins voru þeir Guðjón Tómasson og Runólfur Jóhannsson.
Verðandi hefur verið frumkvöðull í því sem kemur björgunarmálum og öryggi sjómanna við. Vegna samvinnu Verðanda og Björgunarfélags Vestmannaeyja var komið á tilkynningaskyldu meðal báta 20 árum áður en hún var gerð skylda annarsstaðar. Einnig gerði félagið það að skyldu að það þyrfti að hafa gúmmíbjörgunarbáta í borð í skipum Vestmannaeyja.
En einnig var Verðandi að reyna koma á hömlum gegn fiskveiðum