Vilpa

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 11. júlí 2005 kl. 12:53 eftir Jonas (spjall | framlög) Útgáfa frá 11. júlí 2005 kl. 12:53 eftir Jonas (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Vilpa var eitt af fjórum vatnsbólum í Vestmannaeyjum. Það stóð sunnan við Vilborgarstaði og fyllt var upp í hana árið 1972. Vilpa fór undir hraun árið 1973.

Nokkrar þjóðsögur eru frá Vilpu eins og þjóðsagan um Herjólf og Vilborgu og einnig um spádómin úr Vilpu. Spádómurinn fer á þessa leið

Þegar byggð á Heimaey færist vestan Hásteins, fyllt verður upp í Vilpu og sonur biskups yrði sóknarprestur Vestmannaeyja, þá mun hefjast gos í Helgafelli.

Eins og sést þá má segja að hann hafi ræst því byggð var kominn vestur fyrir Hástein og fyllt hafði verið upp í Vilpu. En sonur biskups séra Karl Sigurbjörnsson varð ekki prestur í Vestmannaeyjum fyrr en eftir að gosið hófst.