Blik 1976/Skýrsla Rauða Kross Íslands og Hjálparstofnunar kirkjunnar um öflun fjár og framlög til uppbyggingar Eyjabyggðar
Grein væntanleg
Tilgangur minn með útgáfu Bliks hefur ávallt verið sá öðrum þræði, að halda til haga köflum úr sögu Vestmannaeyinga og Vestmannaeyja.
Í fyrra birtist í Bliki skýrsla um starfsemi Vestmannaeyjabæjar í Hafnarbúðum eftir bæjarlögfræðinginn Georg Tryggvason. Að þessu sinni birtir Blik skýrslu formanns Rauða Kross Íslands, Björns Tryggvasonar bankastjóra, um þá hina miklu hjálp og aðstoð, sem sú hjálparstofnun hefur veitt Vestmannaeyjabyggð og Vestmannaeyingum, til þess að endurreisa byggð í Eyjunum og veita aðstoð húsnæðislausum Eyjabúum eftir flóttann, þegar eldgosið hófst. Þá eru hér einnig birtar tölur, sem greina frá hjálp Hjálparstofnunar hinnar íslenzku þjóðkirkju til sömu aðila. Sú hjálp hafði samtals numið um kr. 25 milljónum við árslok 1974. M. a. greiddi Hjálparstofnun kirkjunnar kr. 12,5 milljónir til byggingar barnaheimilisins (leikskólans) Kirkjugerði.
Enn eru skýrslur í fórum Bliks um þetta risavaxna hjálparstarf þessara stofnana, og skulum við vona, að Bliki endist aldur til þess að birta þær síðar.
Vissulega ber okkur Eyjabúum að þakka af alúð alla veitta hjálp á undanförnum árum, þakka einstaklingum og stofnunum, sem lagt hafa hér hönd á plóginn og veitt okkur ómetanlega hjálp til þess að lifa áfram mannsæmandi lífi þrátt fyrir öll ósköpin, sem yfir hafa dunið. Og það er mín sannfæring, að við megum þá heldur ekki gleyma að þakka ríkisvaldinu hjálp þess og alla aðstoð. Ég tek þetta sérstaklega fram af gildum ástæðum, öll þessi mikilvæga hjálp hinna mörgu einstaklinga og stofnana hefur valdið miklu. Hinn markverði árangur fer ekki framhjá neinum. Endurnýjun og uppbygging atvinnulífs og menningarlífs í ríkum mæli á sér stað í bænum okkar.
Hér birtum við myndir af byggingum, sem keyptar hafa verið eða reistar til hjálpar og uppbyggingar, og svo reikninga, sem veita okkur fræðslu um það, hvaðan féð til framkvæmdanna er runnið og hvernig því hefur verið varið. Reikningsyfirlitið og greinargerðina hefur Rauði Kross íslands afhent Bliki til birtingar samkvæmt einlægri ósk minni,
Þ. Þ. V.
Í framhaldi fyrstu hjálpar Rauða Krossins við Vestmannaeyinga fyrstu vikurnar eftir að Heimaeyjargosið hófst, tók við af hans hálfu ráðstöfun þeirra fjármuna, sem honum hafði verið trúað fyrir til ýmissa félagslegra lausna bæði á landinu og í Vestmannaeyjum.
Er viðeigandi að birta upplýsingar um þetta efni í Bliki, ársriti Vest-mannaeyinga nú, þegar aðalniðurstöður bókhalds um söfnunina og ráðstöfun liggur fyrir í bráðabirgðauppgjöri þannig:
Uppruni fjármagns
- Ýmsir söfnunarreikningar 104.930.567,51
- Vextir af sama 2.307.386,10
- Söfnunarfé frá USA 30.480.689,00
- Gengishagnaður og vextir af sama 8.075.481,00
- Söfnun frá Danska Rauða krossinum .... 3.564.932,00
- Söfnun frá Sænska Rauða krossinum .... 16.180.220,00
- Söfnun frá Noregi á vegum Hjálparstofnunar kirkjunnar og RKÍ 109.294.815,00
- Styrkur ríkissjóðs 1.200.000,00
- Tekjur af seldri íbúð umfram bókf. verð . 2.045.000,00 278.079.090,61
278.079.090,61
Ráðstöfun fjármagns
Rekstursliðir (samandregnir að hluta):
- Fjárhagsaðstoð og framfærslustyrkir .... 26.558.032,00
- Mötuneyti, Hafnarbúðir 2.996.062,30
- — Vestmannaeyjum 905.637,10
- — Silungapolli 426.484,70
- — Þorlákshöfn 32.954,80
- Riftún, Ölfusi (barnaheimili) 434.949,00
- Tónabær (samkomur unglinga) 44.487,00
- Ölfusborgir og félagsstarf í Ölfusi 150.000,00
- Elli-og hjúkrunarheimili 54.103,00
- Skátaheimili, Vestmannaeyjum 600.000,00
- Tjarnarbúð 81.182,00 32.283.891,90
- Félagsleg ráðleggingarmiðstöð, Rvík. ... 136.740,70
- Ferðakostnaður barna til Noregs 1973 . . 1.003.298,20
- Húsnæðiskönnun vorið 1973 34.207,00
- Ferðakostnaður til Noregs 459.385,00
- Færeyjaferð gagnfræðaskóla 150.000,00
- Félagsleg aðstoð 20.000,00 1.803,630,90
- Ýmis kostnaður (skv. bókun) 2.281.223,40 2.281.223,40
Fjárfestingar:
- Hraunbúðir, vistheimili aldraðra, Vm. . . 82.177.625,00
- Rauðagerði, barnaheimili, Vm 17.712.840,00
- Völvuborg, barnaheimili, Breiðholti 16.444.203,00
- Kríuhólar 4, Breiðholti 18.955.000,00
- Kleppsvegur 32, Rvík 28.876.630,00
- Síðumúli 21, Rvík 14.459.280,90
- Sjúkrahúsið í Vestmannaeyjum 40.758.228,00 219.383.806,90
Veltufjármunir:
- Innstæða í Útvegsb. í Vestm.eyjum 15.062.704,00
- Danski Rauði krossinn 533.957,00
- Sparisjóðsbók í Landsb., Rvík 2.006.797,00
- Sparisjóðsbækur (lokatölurl 36.739,60
- Óráðstafaður sjóður 2.586.339,91
- Útistandandi skuldabr. v/ sölu kjallaraíbúðar að Kleppsvegi 32 1.500.000,00
- — afborgun — — 1.600.000,00 23.326.537,51
- - Ógreidd afborgun v/ Kleppsv 1.000.000,00 22.326.537,51
278.079.090,61
Erlendu gjafafé var ráðstafað beint til kaupa innfluttra heimila og er miðað við daggengi, er greiðslur gengu til framleiðenda.