Ólafur Ó. Lárusson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 8. júlí 2005 kl. 08:42 eftir Jonas (spjall | framlög) Útgáfa frá 8. júlí 2005 kl. 08:42 eftir Jonas (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Ólafur Ó. Lárusson var héraðslæknir Vestmannaeyinga frá árinu 1925 til ársins 1951. Hann var fæddur að Sjónarhóli á Vatnsleysuströnd þann 1. september 1884. Foreldrar: Lárus Pálsson og s Guðrún Þórðardóttir.

Ólafur varð stúdent í Reykjavík árið 1905 og tók próf í læknisfræði frá Læknaskólanum 1910. Hann starfaði tímabundið við sjúkrahús erlendis. Ólafur var skipaður héraðslæknir í Hróarstunguhéraði árið 1911, ásamt Fljótsdalshéraði. Árið 1925 var hann settur héraðslæknir í Vestmannaeyjum og einnig var hann ráðinn læknir við franska sjúkrahúsið þar til 1928 og síðar við sjúkrahús Vestmannaeyja. Hann lét af störfum sem héraðslæknir 1951 og andaðist í Vestmannaeyjum 1952.

Kona hans var Sylvía Níelsína Guðmundsdóttir og áttu þau saman tíu börn.


Heimildir

  • Guðlaugur Gíslason: Eyjar gegnum aldirnar. Frásagnir af mannlífi og atburðum í Vestmannaeyjum frá gamalli tíð og nýrri. Reykjavík, 1982.