Íþróttamiðstöðin
Íþróttamiðstöðin í Brimhólalaut, var byggð árið 1976 og var þá 3.414 m2. Fyrsta skóflustunga að nýja íþróttahúsinu var tekin 17. júní árið 2000 og voru verklok 28. desember 2001. Hið nýja íþróttahús er 3.081 m2 og þegar við það er bætt eldra húsinu og stækkun á aðalandyri og millibyggingu til austurs þá er allt húsið 6.581 m2.
Í nýja salnum (sem er sá stærsti á landinu) eru áhorfendapallar beggja megin fyrir um 800 manns, þar af 600 í sætum. Íþróttamiðstöðin býður nú uppá fullkomna keppnisaðstæður fyrir nánast allar keppnisíþróttir, hér er fullkomnasta fimleikagryfja landsins, 3 löglegir handboltavellir, líkamsræktarsalur og ein besta sundlaug landsins. Þá er einnig boðið upp á glæsilega skrifstofuaðstöðu fyrir allar deildir ÍBV. Starfsmannafjöldi er 14 100% stöðugildi og 1 50% stöðugildi og er unnið á vöktum. Fjöldi sem kemur árlega í húsið er í kringum 220.000 manns og þá má reikna með því að á 26 árum séu búin að koma um 5,7 milljónir manna í húsið en ætla má að einhverjir hafi komið oftar en einu sinni.
Heimildir
- Aðalskipulag Vestmannaeyja 2002-2014