Jón Þorsteinsson (Landlyst)
Jón Þorsteinsson var fæddur 12. okóber 1868 í Landlyst í Vestmannaeyjum. Hann var sonur héraðlæknishjónanna í Eyjum, Þorsteins Jónssonar og Matthildar Magnúsdóttur. Jón Þorsteinsson varð verzlunarmaður í Reykjavík. Einnig mun hann hafa stjórnað verzlun í Borgarnesi um skeið.
Heimildir
Bliki, 23. árg 1962, grein um sögu barnafræðslunnar í Vestmannaeyjum eftir Þorstein Víglundsson.