Blik 1941, 1. tbl/Fréttir
FRÉTTIR.
I. Mikil veikindi hafa geisað í bænum að undanförnu. Um tveggja vikna skeið af febrúar var skólanum okkar lokað og fellt niður nám. Það hefir því orðið að herða róðurinn við námið nú í seinni tíð meir en
nokkru sinni fyrr, svo að það
er þrautabarningur, að okkur
þykir mörgum. En áfram skal
það, og við viljum ekki gefast
upp fyrr en í fulla hnefana. Um
páska hefst prófið og þá nýtur
maður þess, ef dyggilega og
sleitulaust hefir verið starfað að
vetrinum. Þannig lítum við á
það að minnsta kosti.
II. Nú er kominn vorhugur
í okkur krakkana, og knettirnir
komnir á loft. Hvern dag leikum við handknattleik á leikvelli
skólans undir stjórn og hvatning kennara okkar. Já, það er
vorhugur úti og vorhugur inni,
já, „það er sól úti, sól inni, sól
í hjarta, sól í sinni“ hjá okkur, þótt skyggi í álinn á milli og dökk námsský dragi á loft.
III. í fyrravetur ákvað fræðslumálastjórnin að láta fram fara landspróf eða yfirlitspróf í nokkrum námsgreinum í gagnfræða- og héraðsskólum landsins. Prófin voru þreytt í 5 námsgreinum. Þær voru þessar: Íslandssaga, íslenzka, bókmenntasaga, réttritun og reikningur. Rétt þykir BLIKI að gefa Eyjabúum dálitla hugmynd um, hvað einkunnaskýrslur fræðslumálastjórnarinnar um þetta próf segja um gagnfræðaskólann okkar borinn saman við aðra gagnfræðaskóla í landinu.
Heildarniðurstöður eru á þessa leið um Gagnfræðaskólann hér:
Aðaleinkunn Hvar í röðinni
Í íslenzku .... 5,54 ...... 3.
Íslandssögu . . 7,19 ..... 1.
bókmenntasögu 5,83 ..... 3.
réttritun .... 6,97 ...... . 2.
reikningi .... 5,33 ...... 1.
Héraðsskólarnir fá yfirleitt
betri útkomu úr fjórum fyrstu námsgreinunum en gagnfræðaskólarnir, enda eldri og þroskaðri nemendur í þeim skólum. Gagnfræðaskólinn okkar hefir hæsta einkunn í reikningi af öllum héraðs- og gagnfræðaskólunum.
- A + B + F fréttaritarar.