Blik 1936, 3. tbl./1. Desember

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 13. september 2009 kl. 11:11 eftir Saerun (spjall | framlög) Útgáfa frá 13. september 2009 kl. 11:11 eftir Saerun (spjall | framlög) (Ný síða: '''1. DESEMBER''' Nú í nokkur ár hafa nemendur gagnfræðaskólans hér haldið ársfagnað sinn 1. desember. Sá dagur er ekki valinn af handahófi. Að baki þess sögulega atburð...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

1. DESEMBER

Nú í nokkur ár hafa nemendur gagnfræðaskólans hér haldið ársfagnað sinn 1. desember. Sá dagur er ekki valinn af handahófi. Að baki þess sögulega atburðar, sem átti sér stað 1. des. 1918, felst allt hið besta og dýrmætasta, sem finnst í íslensku gáfnafari, skapgerð og þjóðlífi.

Við glötuðum sjálfstæði okkar 1262.

Orsök þess sorglega atburðar voru íslenskir skapgerðarbrestir. Eigingirnin og valdasýkin, heiftin og grimdin samfara hroka annarsvegar og undirlægjuhætti hinsvegar, voru þeir skapbrestir forustumanna þjóðarinnar, sem skópu henni hin þungu örlög. Manngæskan þokaði fyrir mannvonskunni. Hið forsjála mannvit var ofurliði borið af heift og heimsku. Íslendingar misstu stjórn á sjálfum sér og glötuðu gæfu fjölmargra kynslóða.

Af þessari sögulegu staðreynd mættum við mikið læra.