Ræningjatangi
![](/images/thumb/6/64/R%C3%A6ningjatangi.jpg/300px-R%C3%A6ningjatangi.jpg)
Ræningjatangi er tangi sem stendur í suðurátt austan við Brimurð á Heimaey. Tanginn dregur nafn sitt af sjóræningjunum sem komu til Vestmannaeyja í Tyrkjaráninu árið 1627, en þar er sagt að sjóræningjarnir hafi komið í land, þar sem að ógreiðfært var fyrir þá inn höfnina vegna aðstöðu danska hersins þar.