Blik 1936, 1. tbl./Athyglisverð játning, tölur sem tala

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 8. september 2009 kl. 21:19 eftir Saerun (spjall | framlög) Útgáfa frá 8. september 2009 kl. 21:19 eftir Saerun (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Þorsteinn Þ. Víglundsson

ATHYGLISVERÐ JÁTNING Tölur sem tala

MAÐUR nokkur segir svo frá: „Ég er nú 45 ára gamall. 15 ára að aldri byrjaði ég að neyta tóbaks af rælni. Félagar mínir gerðu það, og ég lét til leiðast. Allt var það gert í pukri fyrsta árið. Eftir því sem ég kemst næst, mun ég hafa eytt til jafnaðar 60 aurum á dag til 20 ára aldurs. Ég hefi því eytt kr. 1095,60 til þess tíma, eða 60 aurum á dag í 1826 daga (5 ár).

Frá tvítugsaldri til þrítugs mun ég hafa eytt við 95 aurum á dag að meðaltali, eða kr. 3469,40 — þ.e.a. segja kr. 0,95 á dag í 3652 daga.

Ég giftist 26 ára gamall, og hafði þá einnig fyrir barni að sjá. Atvinnu hafði ég litla og þröngt var í búi hjá okkur.Ég vildi nú hætta tóbaksnautninni, en það reyndist mér með öllu ókleift. Ég verð að játa það, þó með blygðun sé, að ég tók þá aura fyrir tóbak, sem ég þurfti og átti að nota fyrir mat og klæði handa konu og barni. Börnunum fjölgaði og erfiðleikarnir uxu. Ég varð að eyða peningum fyrir tóbak, þótt tekjurnar væru svo litlar, að ég gat ekki fullnægt sárustu þörfum fjölskyldunnar. Ég hafði eitrað líkama minn með tóbaksnautn og sú eitrun krafðist viðhalds, hvað sem það kostaði.

Verð tóbaksins fór hækkandi og þær krónur, sem ég eyddi fyrir það, urðu æ átakanlegri blóðpeningar.

Síðastliðin 15 ár hefi ég eitt til jafnaðar ekki minna en 100 aurum á dag fyrir tóbak eða kr. 5478,00 alls — þ.e.a s., kr. 1,00 á dag í 5478 daga.

Samtals hefi ég því eytt kr. 10.043,00 — tíu þúsund fjörutíu og þrem krónum.

Þetta er ógurleg upphæð, sem segir hræðilegan sannleika, og það er með særðum huga, að ég hugsa til hennar. En af því að ég vil ekki óska öðrum sömu ógæfunnar sem ég hefi orðið að búa við sjálfur í þessum efnum, þá set ég þessar tölur fram, ef þær kynnu að vekja ungmenni til athugunar á þeim efnalega voða, sem liggur að baki tóbaksneyzlunnar.