Magnús Stephensen

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 4. júlí 2005 kl. 10:02 eftir Jonas (spjall | framlög) Útgáfa frá 4. júlí 2005 kl. 10:02 eftir Jonas (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Magnús Stephensen var héraðslæknir Vestmannaeyja frá 1863 til 1865. Hann var fæddur í Ásum í Skaftártungum 14. apríl 1835. Foreldrar hans voru séra Pétur Stefánsson prestur og Gyðríður Þorvaldsdóttir. Hann varð stúdent í Reykjavík árið 1856 og lauk læknisprófi frá háskólanum í Kaupmannahöfn árið 1862. Magnús var ráðinn sem aðstoðalæknir Jóns Hjaltalíns landlæknis árið 1862 og skipaður héraðslæknir í Vestmannaeyjum árið 1863. Magnús var fyrsti innlendi héraðslæknirinn sem var skipaður í Vestmannaeyjum.

Magnús lést í Vestmannaeyjum 12. febrúar 1865, ókvæntur og barnlaus.


Heimildir

  • Guðlaugur Gíslason: Eyjar gegnum aldirnar. Frásagnir af mannlífi og atburðum í Vestmannaeyjum frá gamalli tíð og nýrri. Reykjavík, 1982.