Halldór Gunnlaugsson (héraðslæknir)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 4. júlí 2005 kl. 09:49 eftir Jonas (spjall | framlög) Útgáfa frá 4. júlí 2005 kl. 09:49 eftir Jonas (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Halldór Gunnlaugsson var héraðslæknir Vestmannaeyja frá 1906 til 1924. Hann fæddist á Skeggjastöðum á Langanessströnd. Foreldrar hans voru Gunnlaugur Halldórsson og Margrét Andrea Lúðvíksdóttir. Halldór varð stúdent í Reykjavík 1897 og cand. med. frá Háskóla Íslands árið 1903. Hann starfaði á Köbenhavns-Amtsjúkrahúsinu árið 1903 og seinna sem aðstoðalæknir á Akureyri 1903-1905. Halldór var skipaður héraðslæknir í Vestmannaeyjum árið 1906 og gegndi því embætti þar til hann drukknaði við skyldustörf sín í hinu mikla sjóslysi sem varð við Eiðið 16. mars 1924.

Hann var franskur ræðismaður og starfaði sem yfirlæknir á franskaspítalanum sem rekinn var í Eyjum um alllangt skeið í húsinu sem nú er Kirkjuvegur 20. Kona hans var Anna Sigrid Threp og áttu þau fjögur börn og eru allmargir afkomendur þeirra búsettir í Vestmannaeyjum.


Heimildir

  • Guðlaugur Gíslason: Eyjar gegnum aldirnar. Frásagnir af mannlífi og atburðum í Vestmannaeyjum frá gamalli tíð og nýrri. Reykjavík, 1982.