Johan Nicolai Abel

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 30. júní 2005 kl. 16:20 eftir Skapti (spjall | framlög) Útgáfa frá 30. júní 2005 kl. 16:20 eftir Skapti (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Johan Nikolai Abel, sýslumaður 1821 til 1839 og aftur 1840 til 1852. Hann var danskur að ætt. Hafði tekið hið danska embættispróf í lögum. Var settur sýslumaður í Vestur-Skaftafellssýslu 1820 en fékk sama ár konungsveitingu fyrir Vestmannaeyjasýslu. Hinn 10. júní 1847 veitti konungur honum kammerráðsnafnbót. Abel sýslumaður var hár vexti, karlmannlegur og talinn hið mesta hraustmenni en ekki mikill lærdómsmaður.


Heimildir

  • Guðlaugur Gíslason: Eyjar gegnum aldirnar. Frásagnir af mannlífi og atburðum í Vestmannaeyjum frá gamalli tíð og nýrri. Reykjavík, 1982.