Hans Wium

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 30. júní 2005 kl. 16:20 eftir Skapti (spjall | framlög) Útgáfa frá 30. júní 2005 kl. 16:20 eftir Skapti (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Hans Wium, settur sýslumaður 1738 til 1740. Bjó að Oddsstöðum. Foreldrar hans voru Jens sýslumaður Wium og kona hans Ingibjörg Jónsdóttir Vigfússonar. Tekinn í Skálholtsskóla 1733, stúdent 1736, fór utan 1737, skráður í stúdentatölu í háskólanum í Kaupmannahöfn. Hans Wium dvaldi aðeins tvö ár í Vestmannaeyjum. Fékk konungsveitingu fyrir miðhluta Múlaþings, en var vikið frá embætti um tíma vegna Sunnefu-málsins svokallaða, en var af hæstarétti algerlega sýknaður í því máli og fékk embættið aftur. Hann var tvígiftur. Fyrri kona hans var Guðrún Árnadóttir ríka á Arnheiðarstöðum og áttu þau fjögur börn. Síðari kona hans var Una Guðmundsdóttir í Nesi í Loðmundarfirði og voru þau barnlaus.


Heimildir

  • Guðlaugur Gíslason: Eyjar gegnum aldirnar. Frásagnir af mannlífi og atburðum í Vestmannaeyjum frá gamalli tíð og nýrri. Reykjavík, 1982.