Magnús Stephensen

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 30. júní 2005 kl. 16:14 eftir Skapti (spjall | framlög) Útgáfa frá 30. júní 2005 kl. 16:14 eftir Skapti (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Magnús Stephensen, héraðslæknir 1863 til 1865. Hann var fæddur í Ásum í Skaftártungum 14. apríl 1835. Foreldrar hans voru séra Pétur prestur þar og síðast á Ólafsvöllum Stefánsson Stephensen og kona hans Gyðríður Þorvaldsdóttir prests í Holti undir Eyjafjöllum Böðvarssonar. Hann varð stúdent í Reykjavík 1856 og lauk læknisprófi frá háskólanum í Kaupmannahöfn 1862. Aðstoðalæknir Jóns landlæknis Hjaltalíns 1862 og skipaður héraðslæknir í Vestmannaeyjum og var hann fyrsti innlendi héraðslæknirinn sem þar var skipaður. Hann lést í Vestmannaeyjum 12. febrúar 1865, ókvæntur og barnlaus.


Heimildir

  • Guðlaugur Gíslason: Eyjar gegnum aldirnar. Frásagnir af mannlífi og atburðum í Vestmannaeyjum frá gamalli tíð og nýrri. Reykjavík, 1982.