Jaðar
Húsið Jaðar stendur við Vestmannabraut 6. Það er reist af Matthíasi Finnbogasyni árið 1907, var upprunalega viðgerðarverkstæði og notaði það í allt sem varðaði viðgerðir og til að auka þekkingu vélstjóra.
Eftir Heimaeyjargosið var Jaðar síðasta húsið við hraunkantinn í austurátt á Vestmannabrautinni, og stendur það því í hraunjaðrinum. Næsta hús við Jaðar, sem fór undir hraun, hét Hraun.