August Ferdinand Schneider
August Ferdinand Schneider, héraðslæknir 1845 til 1848. Hann nam læknisfræði við Kaupmannahafnarháskóla og lauk þaðan prófi 1845, en hafði á árunum 1841 til 1843 verið læknir á hvalveiðiskipum í suðurhöfum. Hann var skipaður héraðslæknir í Vestmannaeyjum 1845, en starfaði hér mjög stutt. Fékk lausn frá embætti 2. september 1847 og fluttist aftur til Danmerkur.
Heimildir
- Eyjar gegnum aldirnar Guðlaugur Gíslason. ISBN 00003556930