Ingibjörg Ólafsdóttir (Bólstaðarhlíð)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 5. júní 2009 kl. 11:42 eftir Inga (spjall | framlög) Útgáfa frá 5. júní 2009 kl. 11:42 eftir Inga (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Perla, Kristín, Sigríður, Jón, Sigfríður, Halldóra. N. röð Bjarni Ólafur, Björn, Ingibjörg, Soffía

Ingibjörg var fædd 12. apríl árið 1895 í Dalseli undir Eyjafjöllum og lést 2. júní 1976. Hún var dóttir Ólafs Ólafssonar f. 6. júlí 1856 og Sigríðar Ólafsdóttur f. 9. sept. 1859 frá Eyvindarholti.

Ingibjörg giftist 12.júní 1921 Birni Bjarnasyni f. 3. mars 1893 d. 25. sept. 1947 og bjuggu þau í Bólstaðarhlíð við Heimagötu 39 í Vestmannaeyjum. Ingibjörg og Björn eignuðust átta börn, Halldóru Kristínu f. 3. apríl 1922, Sigríði f. 8. apríl 1923, Jón f. 17. júní 1924, Kristínu f. 22. maí 1925, Sigfríði f. 11. sept. 1926, Perlu f. 11. ágúst 1928, Soffíu f. 13. ágúst 1933 og Bjarna Ólaf f. 9. maí 1935 d. 4. júní 1959, hrapaði i Bjarnarey í Vestmannaeyjum.

Ingibjörg var gædd mikilli frásagnargáfu og skrifaði hún margar greinar í Blik og fleiri blöð í Vestmannaeyjum.

Garðurinn sem Ingibjörg ræktaði

Ingibjörg ræktaði líka upp einn fallegasta garð sem í Vestmannaeyjum hefur verið, við heimili sitt í Bólstaðarhlíð.