Guðlaugur Brynjólfsson (Odda)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 12. febrúar 2009 kl. 09:07 eftir Inga (spjall | framlög) Útgáfa frá 12. febrúar 2009 kl. 09:07 eftir Inga (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Guðlaugur Brynjólfsson fæddist 23. júlí árið 1890 og lést 30. desember 1972. Guðlaugur byggði húsið Odda við Vestmannabraut og bjó þar.

Valgerður og Guðlaugur ásamt börnum á fermingardegi Jóhannesar

Fyrri kona Guðlaugs var Halla Jónsdóttir (lést 1918) og áttu þau tvö börn Sveinbjörn og Höllu, en áður átti Halla sonin Jóhannes G. Brynjólfsson (Stefánssonar skósmiðs frá ]]Dalir|Dölum]]). Seinni kona Guðlaugs var Valgerður Guðmundsdóttir og áttu þau dótturina Halldóru.

Guðlaugur fór til Vestmannaeyja árið 1910 og byrjaði formennsku árið 1912 á Frí en tók svo við Gnoð árið 1918. Guðlaugur eignaðist hluti í bátum. Eignaðist 1/3 í m/b Glað og síðar allan, til 1939. Lét þá byggja Gísla J.Johnsen. Var formaður með marga báta, til 1930, fyrst með m/b Frí 1912, Gnoð 1918, Örn, Mínervu, Glað 1925-26, Höskuld RE, Gissur hvíta 1928-29 og Glað 1930. Hætti þá sjósókn og vann að útgerð sinni.

Guðlaugur lést á heimili sínu í Kópavogi í lok árs 1972, 82 ára gamall.



Heimildir

  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.
  • Gísli Eyjólfsson frá Bessastöðum
  • Lára Halla Jóhannesdóttir frá Kirkjulandi