Ólafur Jónsson (Hlíð)
Sjá aðgreiningarsíðuna fyrir aðra sem hafa borið nafnið „Ólafur Jónsson“
Ólafur Jónsson, Hlíð, fæddist að Hlíð í Vestmannaeyjum þann 10. mars 1915. Foreldrar hans voru Jón Jónsson og Þórunn Snorradóttir. Ólafur byrjaði ungur sjómennsku en formennsku hóf hann árið 1936-1937 á Hansínu. Eftir það var Ólafur með Ástu 1938-1939 Sleipni 1941, Frey 1942-1944 og á þeim bát fórst Ólafur 12. febrúar 1944 ásamt allri áhöfninni norðvestur af Þrídröngum í suðvestan ofsaveðri.
Heimildir
- Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.
- Viðbætur við heimildir: Gísli Eyjólfsson frá Bessastöðum.