Brynjólfur Brynjólfsson (Litlalandi)
Brynjólfur Brynjólfsson Litlalandi, var fæddur á Strönd í Vestur-Landeyjum 16.sept.1879 Var vinnumaður og sjómaður á áraskipum, þar og í Vestmannaeyjum. Flutti til Eyja skömmu eftir aldamótin 1900. Var sjómaður á vélbátum fram eftir ævi, síðan verkamaður og stundaði beykisstörf, var kirkjugarðsvörður og síðustu æviárin sjúkrahússráðsmaður. Kona hans var Guðbjörg Magnúsdóttir úr V-Landeyjum.(Systir Guðmundar á Goðalandi) Börn þeirra; María, bjó í Reykjavík, Magnea Laufey, dáin 1936, 21. árs og Jóhann, dáinn árið 1937, 17 ára.
Heimildir
- Gísli Eyjólfsson frá Bessastöðum