Ólafur Ó. Lárusson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 20. júní 2005 kl. 08:51 eftir Jonas (spjall | framlög) Útgáfa frá 20. júní 2005 kl. 08:51 eftir Jonas (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Ólafur Ó. Lárusson, héraðslæknir 1925 til 1951. Fæddur að Sjónarhóli á Vatnsleysuströnd 1. september 1884. Foreldrar Lárus smáskammtalæknir þar og dbrm, síðar í Reykjavík Pálsson og kona hans Guðrún Þórðardóttir bónda að Höfða á Vatnsleysuströnd Jónssonar. Stúdent í Reykjavík 1905 og próf í læknisfræði frá Læknaskólanum 1910. Starfaði tímabundið við sjúkrahús erlendis. Skipaður héraðslæknir í Hróarstunguhéraði 1911, ásamt Fljótsdalshéraði og héraðslæknir í Vestmannaeyjum 1925, jafnframt læknir við franska sjúkrahúsið þar til 1928 og síðar við sjúkrahús Vestmannaeyja. Hann lét af störfum sem héraðslæknir 1951 og andaðist í Vestmannaeyjum 1952. Kona hans var Sylvía Níelsína Guðmundsdóttir útvegsbónda og kaupmanns á Stóru Háeyri á Eyrarbakka Ísleifssonar og áttu þau tíu börn.