Andreas Steener Iversen Haaland

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 16. júní 2005 kl. 14:07 eftir Jonas (spjall | framlög) Útgáfa frá 16. júní 2005 kl. 14:07 eftir Jonas (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Andreas Steener Iversen Haaland, læknir 1839 til 1845. Hann var skipaður læknir í Vestmannaeyjum með sérstöku tilliti til ginklofaveikinnar, sem þá geisaði þar og olli dauða flestra ungbarna sem í Vestmannaeyjum fæddust. Hann rannsakaði ginklofaveikina af miklum áhuga og fékk 200 rd. styrk frá dönsku stjórninni til að kaupa á smásjá og fleiri tækjum. Hann barðist mjög fyrir að hér yrði komið upp fæðingarstofu og að konum yrði gert að skyldu að fæða börn sín þar og dvelja þar 3-4 vikur eftir barnsburð og einnig að ung stúlka úr Eyjunum yrði send á fæðingarstofnun í Kaupmannahöfn til þess að læra yfirsetukvennafræði. Var tillögum hans hafnað og ginklofinn geisaði áfram. Hann fluttist frá Vestmannaeyjum til Danmerkur árið 1845 og varð síðar læknir í Julianehaab á Grænlandi. Læknisfræði hafði hann á sínum tíma numið við háskólan í Kaupmannahöfn.