Willum Andersen

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 23. ágúst 2007 kl. 12:46 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 23. ágúst 2007 kl. 12:46 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Willum Jörgen Andersen fæddist 30. september 1910 og lést 17. júlí 1988. Foreldrar hans voru Pétur Andersen og Jóhanna Guðjónsdóttir. Hann átti 7 systkini.

Eiginkona hans hét Guðrún Ágústa Ágústsdóttir. Þau bjuggu á Hásteinsvegi 6 (Kiðjaberg) og 8, og á Heiðarvegi 55. Börn þeirra voru Guðrún Andersen f. 1933, Jóhanna Andersen f. 1938, Ágústa Þyrí Andersen f. 1941 d. 2006, Willum Pétur Andersen f. 1944 og Halla Júlía Andersen f. 1953.

Willum var formaður með mótorbátinn Skógafoss VE-236 og Öðling VE-202.

Óskar Kárason samdi formannavísu um Willum:

Villúm skýr á Skógafoss
skafnar drafnir klýfur.
Margan hlýtur kylju koss
kappinn sjó við stífur.

Óskar Kárason samdi seinna aðra vísu um hann:

Andersen Villum venur
víðinn á Metu fríða.
Drengurinn fiski fenginn
finnur í sóknum stinnur,
sjúps þó að dætur hjúpi
duggu í brima muggu.
Glettinn er grérinn nettur,
greindur við sjó og reyndur.



Heimildir

  • Óskar Kárason. Formannavísur. Vestmannaeyjum, 1950.
  • Óskar Kárason. Formannavísur II. Vestmannaeyjum, 1956.