Jóhanna Sofía Jónsdóttir
Jóhanna Sofía Jónsdóttir fæddist 10. apríl 1855 og lést 2. janúar 1931. Hún var dóttir Jóns Péturssonar sem var dómsstjóri í Reykjavík.
Hinn 28. ágúst 1877 giftist Jóhanna Zóphóníasi Halldórssyni sóknarpresti í Skagafirði. Þessi prestshjón voru langafi og langamma Páls Zóphóníassonar.
Jóhanna var föðursystir Jarþrúðar Pétursdóttur Johnsen konu Sigfúsar M. Johnsen fyrrverandi bæjarfógeta í Vestmannaeyjum.
Heimildir
- Blik, ársrit Gagnfræðaskólans í Vestmannaeyjum. 1980.