Guðni Friðrik Gunnarsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 25. júlí 2007 kl. 09:48 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 25. júlí 2007 kl. 09:48 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Mikli snjórinn 1968. Þarna eru systkinin Guðni og Hrönn Gunnarsbörn, myndin er tekin á lóðinni við Gilsbakka sem stóð við Heimagötu 14. Í baksýn sést svæðið sem nefnist Kokkhúslág.

Guðni Friðrik Gunnarsson er fæddur 8. apríl 1953. Foreldrar hans eru Gunnar Ólafsson og Þuríður G. Ottósdóttir (Stella). Systkini hans eru Erla, Ottó Ólafur, Erlendur og Hrönn. Þau bjuggu á Gilsbakka við Heimagötu þegar byrjaði að gjósa 23. janúar 1973.