Hvoll (við Urðaveg)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 9. júlí 2007 kl. 13:10 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 9. júlí 2007 kl. 13:10 eftir Daniel (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Sjá aðgreiningarsíðuna fyrir önnur hús sem hafa borið nafnið „Hvoll


Hvoll að Urðarvegi 17

Húsið Hvoll stóð við Urðaveg 17a. Það var einnig nefnt Nýi-Hvoll.

Þegar gaus bjuggu á efri hæðinni á Hvoli Guðjón Kristinsson skipstjóri, frá Miðhúsum en oftast kenndur við Hvol, og kona hans Kristín Ólafsdóttir, ásamt fjórum börnum sínum, sem öll eru kennd við æskuheimili sitt. Á neðri hæðinni bjuggu Kolbeinn O. Sigurjónsson, einnig oft kenndur við Hvol, og kona hans Sigríður Sigurðardóttir frá Vatnsdal, ásamt fimm börnum þeirra.

Húsið nr. 17b við Urðaveg, sem var bakhús, var nefnt Litli-Hvoll, og gekk einnig undir nafninu Hvoll. Þegar gaus bjuggu þar Sigurður N Jóhansen og kona hans Bryndís Garðarsdóttir ásamt þremur börnum þeirra.

Þessi hús fóru undir hraun í gosinu 1973.