Bræðratunga
Húsið Bræðratunga var byggt árin 1924-25 og stóð við Heimagötu 27. Runólfur Jónasson frá Stokkseyri byggði húsið og keypti Runólfur sonur hans húsið árið 1941.
Þegar gaus bjó Runólfur Runólfsson í húsinu. Einnig bjuggu þar hjónin Friðrik Jóhannsson og Eygló Björnsdóttir ásamt dóttur sinni Guðlaugu.