Willum Andersen
Willum J. Andersen fæddist 30. september 1910 og lést 17. júlí 1988. Eiginkona hans hét Guðrún Ágústa Ágústsdóttir. Þau bjuggu á Hásteinsvegi 6 (Kiðjaberg) og 8, og á Heiðarvegi 55.
Willum var formaður með mótorbátinn Skógafoss og Öðling VE-202.
Óskar Kárason samdi formannavísu um Willum:
- Villúm skýr á Skógafoss
- skafnar drafnir klýfur.
- Margan hlýtur kylju koss
- kappinn sjó við stífur.
Óskar Kárason samdi seinna aðra vísu um hann:
- Andersen Villum venur
- víðinn á Metu fríða.
- Drengurinn fiski fenginn
- finnur í sóknum stinnur,
- sjúps þó að dætur hjúpi
- duggu í brima muggu.
- Glettinn er grérinn nettur,
- greindur við sjó og reyndur.
Heimildir
- Óskar Kárason. Formannavísur. Vestmannaeyjum, 1950.
- Óskar Kárason. Formannavísur II. Vestmannaeyjum, 1956.