Georgsbúð
Húsið Georgsbúð stendur við Vestmannabraut 23. Þar var verslun í eigu Georgs Gíslasonar og síðar skóverslun Axels Ó. Lárussonar. Einnig var Apótek Vestmannaeyja með snyrtivöruverslun í húsinu til skamms tíma. Árið 2006 var verslunin Eyjavík þar til húsa. Húsið í núverandi mynd var reist árið 1974.
Heimildir
- Vestmannabraut. Verkefni unnið af þátttakendum á námskeiðinu Húsin í götunni. Vestmannaeyjar, 2004.