Básar

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 26. júní 2007 kl. 09:10 eftir Johanna (spjall | framlög) Útgáfa frá 26. júní 2007 kl. 09:10 eftir Johanna (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Básar voru formlega teknir í notkun 8. desember 1984.

Húsfélag Bása var stofnað 5. desember 1976 og húsnæðið keypt daginn eftir. Á árunum 1976-1980 voru neðsta og miðhæð hússins fullkláraðar. 1980- 1983 var unnið við rishæðina. Þann 22.mars 1984 var tilboð frá Carli Ólafi Gränz um að ljúka við og fullklára húsið. Fimm félagssamtök sameinuðust um húsið og þykir það vissulega sjaldgæft að svo sé en Björgunarfélagið, Verðandi, Vélstjórafélagið, Sjómannadagsráð og Eykyndill sameinuðust öll um þetta húsnæði.


Heimildir

  • Rósa Magnúsdóttir. Sjómannadagsblað Vestmannaeyja. 1985.