Guðjón Jónsson (Hlíðardal)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 21. júní 2007 kl. 16:45 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 21. júní 2007 kl. 16:45 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Sjá aðgreiningarsíðuna fyrir aðra sem hafa borið nafnið „Guðjón Jónsson


Guðjón í brúnni á Skuld.

Guðjón Jónsson, Hlíðardal, fæddist 5. desember 1899 að Steinum undir Eyjafjöllum og lést 8. júlí 1966. Guðjón fór fyrst til Vestmannaeyja 16 ára gamall til sjóróðra. Formennsku byrjaði Guðjón árið 1930 á bátnum Siggu. Eftir það var Guðjón með Hebron, Gullfoss og Skuld. Guðjón stundaði mest dragnótaveiði og var einn heppnasti formaður í Eyjum á það veiðarfæri.

Óskar Kárason samdi formannavísu um Guðjón:

Græðis erjar gæða mið
Gaui í Hlíðardalnum,
heppinn þegar síla svið
siglir reiða valnum.

Óskar samdi seinna aðra vísu um hann:

Jónsson ég greini Guðjón
greindan Hlíðardals reyndan,
bragn, sem að fiski fagnar,
flóða á miðum góðum.
Skuld fær ei drengur dulda,
djúp þó að borðin hjúpi,
hlaðna þá garpur glaður
gnoð færir heim frá boða.



Heimildir

  • Óskar Kárason. Formannavísur. Vestmannaeyjum, 1950.
  • Óskar Kárason. Formannavísur II. Vestmannaeyjum, 1956.
  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.