Klettur
Klettur var byggður árið 1961 og stendur við Strandveg 44. Húsið byggði Már Frímannson. Olíuverslun Íslands var með bensínsölu í húsinu. Kolbeinn Ólafsson og Marý Njálsdóttir reka sjoppu og bensínsölu fram að gosi. Eftir gos taka við Magnús Sveinsson og Sjöfn Sigurbjörnsdóttir, endurbyggja um 1986 og stækka húsið nokkrum árum seinna.
Heimildir
- Strandvegur. Verkefni unnið af þátttakendum á námskeiðinu Húsin í götunni. Vestmannaeyjar, 2004.