Mjölnir
Húsið Mjölnir stendur við Skólaveg 18. Það var reist árið 1919.
Á tíunda áratug 20. aldarinnar kviknaði í húsinu og í nokkur ár eftir það bjó enginn í húsinu. Húsið var tekið í gegn og er nú allt til fyrirmyndar, bæði innan veggja og í garðinum. Eigandi hússins er Árni Óli Ólafsson.
Helstu atriði í eigenda- og íbúasögu
- Davíð Árnason
- Júlíus Þórarinsson
- Þórarinn Jónsson og fjölskylda
- Ágúst Þórarinsson
- Hilmar Jónasson
- Kristján Guðmundsson
- Ólafur Harðarson (BLÖ)
- Árni Óli Ólafsson
Heimildir
- Skólavegur. Verkefni unnið af þátttakendum á námskeiðinu Húsin í götunni. Vestmannaeyjar, 2004.