Hörgsholt
Húsið Hörgsholt stóð við Skólaveg 10 og var byggt árið 1924. Húsið var rifið árið 1996. Í ársskýrslu Sparisjóðs Vestmannaeyja 2001 er það nefnt Sturluhöllin.
Einar Björn Sigurðsson og Ingveldur Jónsdóttir bjuggu þar um tíma. Í Hörgsholti eignðust þau dótturina Öldu, sem er gift Hilmi Högnasyni. Einnig hefur verið verið í húsinu ljósmyndastofa.
Húsið er nefnt eftir Hörgsholti í Hrunamannahreppi.
Helstu atriði í eigenda- og íbúasögu
- Kjartan Guðmundsson ljósmyndari byggði húsið
- Bergur Elías Guðjónsson og fjölsk
- Gísli Þór Sigurðsson
- Þórarinn Gunnlaugsson og fjölsk
- Ólafur Bjarnason
- Wolfgang Zeller
Heimildir
- Skólavegur. Verkefni unnið af þátttakendum á námskeiðinu Húsin í götunni. Vestmannaeyjar, 2004.