Jóhann Jónsson (Brekku)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 15. júní 2007 kl. 10:31 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 15. júní 2007 kl. 10:31 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Jóhann Jónsson, Brekku, var fæddur 20. maí 1877 að Túni í Vestmannaeyjum og lést árið 1931. Foreldrar hans voru Jón Vigfússon og Guðrún Þórðardóttir. Hann var kvæntur Kristínu Árnadóttur og meðal sona þeirra var Engilbert Jóhannsson.

Jóhann byrjaði ungur á sjónum, en formennsku hóf hann árið 1907 á Nansen sem hann átti einn. Á honum var hann formaður til ársins 1925.

Jóhann lærði auk þess trésmíði og vann við það eftir að hann hætti formennsku. Var hann talinn með bestu húsasmiðum Vestmannaeyja.



Heimildir

  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.