Árni Stefánsson (Ási)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 21. apríl 2007 kl. 11:20 eftir Frosti (spjall | framlög) Útgáfa frá 21. apríl 2007 kl. 11:20 eftir Frosti (spjall | framlög) (setti inn í efnisflokkinn fólk og tengil)
Fara í flakk Fara í leit

Árni Stefánsson, póstmaður var félagsmaður í Taflfélagi Vestmannaeyja upp úr seinna stríði og tefldi m.a. með sveit félagsins á móti sveit Reykjavíkur 1945. Hann fluttist seinna til Reykjavíkur og varð m.a. kunnur af því að semja skákdæmi sem birtust bæði í blöðum hér og í tímaritum erlendis. Árni var um tíma meðal fremstu skákmanna Reykjavíkur og stundaði talsvert bréfskák. Hann var einn af stofnendum tímaritsins Skák 1947 og stóð að útgáfu þess í tvö ár. Árni varð Íslandsmeistari í bréfskák 1982.